Mark 8 (BOILNTAP)

1 Dag einn um þessar mundir safnaðist mikill mannfjöldi að honum og nú varð fólkið matarlaust á ný. Jesús kallaði þá saman lærisveinana til að ræða málið. 2 „Ég finn til með fólkinu,“ sagði hann. „Nú hefur það verið hér í þrjá daga og allur matur er upp urinn. 3 Ef ég sendi það heim matarlaust mun það örmagnast á leiðinni, því margir eiga langt heim.“ 4 „En er nokkurn mat að finna hér í óbyggðinni?“ spurðu lærisveinarnir. 5 „Hvað eigið þið mörg brauð?“ spurði hann. „Sjö,“ svöruðu þeir. 6 Þá sagði hann fólkinu að setjast niður. Síðan tók hann brauðin og þakkaði Guði. Hann braut þau í sundur, rétti lærisveinunum og þeir síðan fólkinu. 7 Þeir höfðu einnig nokkra smáfiska sem Jesús þakkaði líka fyrir og bað þá að tilreiða. 8 8,9 Allir viðstaddir borðuðu sig metta og að því búnu sendi hann þá heim. Þarna voru um fjögur þúsund manns og þegar leifunum hafði verið safnað saman eftir máltíðina, fylltu þær sjö stórar körfur! 10 Strax að þessu loknu fór hann á bátnum ásamt lærisveinunum og hélt til Dalmanútahéraðs. 11 Þegar leiðtogar staðarins fréttu að Jesús væri kominn, fóru þeir til hans til að þrátta við hann.„Gerðu nú eitthvert kraftaverk fyrir okkur,“ sögðu þeir. „Láttu eitthvað birtast á himninum og þá skulum við trúa á þig.“ 12 Þegar hann heyrði þetta stundi hann þungan og sagði: „Nei, ég hef alls ekki hugsað mér að gefa ykkur slíkt tákn.“ 13 Síðan steig hann aftur um borð í bátinn og hélt yfir vatnið. 14 Þeir höfðu þá aðeins eitt brauð meðferðis því lærisveinarnir höfðu gleymt að birgja sig upp af mat áður en þeir lögðu frá landi. 15 Á leiðinni yfir vatnið sagði Jesús við lærisveinana alvarlegur í bragði: „Varið ykkur á súrdeigi Heródesar konungs og faríseanna.“ 16 „Hvað á hann nú við?“ spurðu lærisveinarnir hver annan. Að lokum komust þeir að þeirri niðurstöðu að hann hlyti að eiga við brauðið sem þeir höfðu gleymt að kaupa. 17 Jesús vissi um hvað þeir voru að tala og sagði því: „Nei, ég á alls ekki við það! Skiljið þið mig ekki? 18 Það er satt sem Jesaja sagði. „Augun eru til að sjá, en hvers vegna notið þið þau ekki? Og hvers vegna hlustið þið ekki, til þess eru eyrun.“ Munið þið ekkert eða hvað? 19 Hvað um fimm þúsundirnar sem ég mettaði með brauðunum fimm? Og hvað fylltuð þið margar körfur með brauðmolum á eftir?“ „Tólf,“ svöruðu þeir. 20 „Og þegar ég lét sjö brauð nægja handa fjórum þúsundum, varð þá eitthvað eftir?“„Sjö fullar körfur,“ svöruðu þeir. 21 „Haldið þið þá enn að ég kvíði brauðleysinu?“ 22 Þegar þeir stigu á land í Betsaída var komið með blindan mann og Jesús beðinn að lækna hann. 23 Jesús leiddi blinda manninn út úr bænum, spýtti í augu hans og lagði hendur sínar yfir þau.„Sérðu núna?“ spurði Jesús. 24 Maðurinn leit í kring um sig. „Já,“ svaraði hann, „ég sé fólk, en ég sé óskýrt, það er eins og trjástofnar.“ 25 Þegar Jesús hafði lagt hendur sínar yfir augu mannsins í annað sinn horfði hann athugull í kringum sig, því nú sá hann allt mjög skýrt. 26 Jesús sagði að hann skyldi halda rakleiðis heim til fjölskyldu sinnar en ekki koma við í bænum á leiðinni. 27 Jesús og lærisveinar hans fóru nú frá Galíleu og til þorpanna í grennd við Sesareu Filippí. Á leiðinni spurði hann þá: „Hvað heldur fólk um mig? Hver heldur það að ég sé?“ 28 „Sumir halda að þú sért Jóhannes skírari,“ svöruðu lærisveinarnir. „Aðrir segja að þú sért Elía eða einhver hinna fornu spámanna risinn upp frá dauðum.“ 29 „En þið?“ spurði hann, „hvern segið þið mig vera?“ Og Pétur svaraði: „Þú ert Kristur.“ 30 Þá áminnti Jesús þá um að tala ekki um þetta við nokkurn mann. 31 Síðan sagði hann þeim frá þjáningunum sem biðu hans, að honum yrði hafnað af öldungunum, æðstu prestunum og öðrum leiðtogum þjóðarinnar, og eftir það yrði hann deyddur, en risi upp frá dauðum á þriðja degi. 32 Hann talaði svo opinskátt við þá um þetta, að Pétur vék honum afsíðis og ávítaði hann.„Svona mátt þú ekki tala,“ sagði Pétur. 33 Jesús sneri sér við, leit á lærisveinana og sagði síðan við Pétur ákveðinni röddu: „Burt með þig, Satan! Þú lítur á málið frá mannlegu sjónarmiði en ekki Guðs.“ 34 Síðan kallaði hann á lærisveinana og allt fólkið og sagði: „Vilji einhver fylgja mér, þá afneiti hann sjálfum sér, taki upp kross sinn og fylgi mér fast eftir, 35 því hver sá sem vill eiga líf sitt fyrir sjálfan sig, mun tapa því. Þeir einir, sem afneita sjálfum sér vegna mín og gleðiboðskaparins, munu kynnast lífinu í raun og veru. 36 Hvaða gagn er að því að eignast allan heiminn, ef maður týnir við það sálu sinni? 37 Er sál mannsins ekki það dýrmætasta sem hann á? 38 Þegar ég kem aftur í dýrð föðurins með heilögum englum, mun ég blygðast mín fyrir hvern þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð á þessum tímum syndar og vantrúar.“

In Other Versions

Mark 8 in the ANGEFD

Mark 8 in the ANTPNG2D

Mark 8 in the AS21

Mark 8 in the BAGH

Mark 8 in the BBPNG

Mark 8 in the BBT1E

Mark 8 in the BDS

Mark 8 in the BEV

Mark 8 in the BHAD

Mark 8 in the BIB

Mark 8 in the BLPT

Mark 8 in the BNT

Mark 8 in the BNTABOOT

Mark 8 in the BNTLV

Mark 8 in the BOATCB

Mark 8 in the BOATCB2

Mark 8 in the BOBCV

Mark 8 in the BOCNT

Mark 8 in the BOECS

Mark 8 in the BOGWICC

Mark 8 in the BOHCB

Mark 8 in the BOHCV

Mark 8 in the BOHLNT

Mark 8 in the BOHNTLTAL

Mark 8 in the BOICB

Mark 8 in the BOITCV

Mark 8 in the BOKCV

Mark 8 in the BOKCV2

Mark 8 in the BOKHWOG

Mark 8 in the BOKSSV

Mark 8 in the BOLCB

Mark 8 in the BOLCB2

Mark 8 in the BOMCV

Mark 8 in the BONAV

Mark 8 in the BONCB

Mark 8 in the BONLT

Mark 8 in the BONUT2

Mark 8 in the BOPLNT

Mark 8 in the BOSCB

Mark 8 in the BOSNC

Mark 8 in the BOTLNT

Mark 8 in the BOVCB

Mark 8 in the BOYCB

Mark 8 in the BPBB

Mark 8 in the BPH

Mark 8 in the BSB

Mark 8 in the CCB

Mark 8 in the CUV

Mark 8 in the CUVS

Mark 8 in the DBT

Mark 8 in the DGDNT

Mark 8 in the DHNT

Mark 8 in the DNT

Mark 8 in the ELBE

Mark 8 in the EMTV

Mark 8 in the ESV

Mark 8 in the FBV

Mark 8 in the FEB

Mark 8 in the GGMNT

Mark 8 in the GNT

Mark 8 in the HARY

Mark 8 in the HNT

Mark 8 in the IRVA

Mark 8 in the IRVB

Mark 8 in the IRVG

Mark 8 in the IRVH

Mark 8 in the IRVK

Mark 8 in the IRVM

Mark 8 in the IRVM2

Mark 8 in the IRVO

Mark 8 in the IRVP

Mark 8 in the IRVT

Mark 8 in the IRVT2

Mark 8 in the IRVU

Mark 8 in the ISVN

Mark 8 in the JSNT

Mark 8 in the KAPI

Mark 8 in the KBT1ETNIK

Mark 8 in the KBV

Mark 8 in the KJV

Mark 8 in the KNFD

Mark 8 in the LBA

Mark 8 in the LBLA

Mark 8 in the LNT

Mark 8 in the LSV

Mark 8 in the MAAL

Mark 8 in the MBV

Mark 8 in the MBV2

Mark 8 in the MHNT

Mark 8 in the MKNFD

Mark 8 in the MNG

Mark 8 in the MNT

Mark 8 in the MNT2

Mark 8 in the MRS1T

Mark 8 in the NAA

Mark 8 in the NASB

Mark 8 in the NBLA

Mark 8 in the NBS

Mark 8 in the NBVTP

Mark 8 in the NET2

Mark 8 in the NIV11

Mark 8 in the NNT

Mark 8 in the NNT2

Mark 8 in the NNT3

Mark 8 in the PDDPT

Mark 8 in the PFNT

Mark 8 in the RMNT

Mark 8 in the SBIAS

Mark 8 in the SBIBS

Mark 8 in the SBIBS2

Mark 8 in the SBICS

Mark 8 in the SBIDS

Mark 8 in the SBIGS

Mark 8 in the SBIHS

Mark 8 in the SBIIS

Mark 8 in the SBIIS2

Mark 8 in the SBIIS3

Mark 8 in the SBIKS

Mark 8 in the SBIKS2

Mark 8 in the SBIMS

Mark 8 in the SBIOS

Mark 8 in the SBIPS

Mark 8 in the SBISS

Mark 8 in the SBITS

Mark 8 in the SBITS2

Mark 8 in the SBITS3

Mark 8 in the SBITS4

Mark 8 in the SBIUS

Mark 8 in the SBIVS

Mark 8 in the SBT

Mark 8 in the SBT1E

Mark 8 in the SCHL

Mark 8 in the SNT

Mark 8 in the SUSU

Mark 8 in the SUSU2

Mark 8 in the SYNO

Mark 8 in the TBIAOTANT

Mark 8 in the TBT1E

Mark 8 in the TBT1E2

Mark 8 in the TFTIP

Mark 8 in the TFTU

Mark 8 in the TGNTATF3T

Mark 8 in the THAI

Mark 8 in the TNFD

Mark 8 in the TNT

Mark 8 in the TNTIK

Mark 8 in the TNTIL

Mark 8 in the TNTIN

Mark 8 in the TNTIP

Mark 8 in the TNTIZ

Mark 8 in the TOMA

Mark 8 in the TTENT

Mark 8 in the UBG

Mark 8 in the UGV

Mark 8 in the UGV2

Mark 8 in the UGV3

Mark 8 in the VBL

Mark 8 in the VDCC

Mark 8 in the YALU

Mark 8 in the YAPE

Mark 8 in the YBVTP

Mark 8 in the ZBP