Acts 20 (BOILNTAP)

1 Eftir uppþotið kallaði Páll saman lærisveinana, uppörvaði þá og kvaddi og hélt síðan til Grikklands. 2 Á leiðinni þangað predikaði hann í hverjum bæ, þar sem kristna menn var að finna. 3 Eftir þriggja mánaða dvöl í Grikklandi, bjó hann sig undir að sigla til Sýrlands, en komst þá á snoðir um að Gyðingarnir höfðu gert samsæri um að lífláta hann. Hann ákvað því að breyta ferðaáætluninni og fara fyrst norður til Makedóníu. 4 Í fylgd með Páli voru þessir menn: Sópater Pýrrusson frá Beroju, Aristarkus og Sekúndus frá Þessaloníku, Gajus frá Derbe, Tímóteus, og Týkíkus og Trófímus, báðir frá Litlu-Asíu. 5 Þeir fóru á undan og biðu okkar í Tróas. 6 Eftir páskahátíðina sigldum við frá Filippí, áleiðis til Tróas og tók ferðin alls fimm daga. Í Tróas dvöldumst við eina viku. 7 Á sunnudeginum komum við saman til heilagrar kvöldmáltíðar. Páll predikaði og vegna þess að hann ætlaði að halda ferðinni áfram næsta dag, talaði hann alveg til miðnættis. 8 Loftsalurinn, sem við vorum í, var lýstur upp með mörgum lömpum. 9 Páll hafði talað lengi þegar drengur, sem Evtýkus hét og sat í gluggakistunni, sofnaði undir ræðunni og féll út um gluggann, niður af þriðju hæð. Var hann látinn þegar að var komið. 10 10-12 Páll fór niður til hans og tók hann í fangið. „Hafið engar áhyggjur,“ sagði hann, „hann lifir.“ Það reyndist rétt! Fólkið endurheimti gleði sína og síðan fóru allir upp í loftsalinn og neyttu saman kvöldmáltíðar Drottins. Eftir það hélt Páll áfram máli sínu og talaði lengi. Þegar hann hélt loks leiðar sinnar, var kominn morgunn! 13 Páll fór landleiðina til Assus en við fórum á undan honum með skipi. 14 Í Assus hittum við hann og sigldum svo saman til Mitýlene. 15 Daginn eftir sigldum við fram hjá Kíos, næsta dag komum við til Samos og þar næsta til Míletus. 16 Páll hafði ákveðið að koma ekki við í Efesus. Hann vildi flýta sér til Jerúsalem til þess að komast á hvítasunnuhátíðina, ef mögulegt væri. 17 Þegar við komum að landi í Míletus sendi hann skilaboð til leiðtoga safnaðarins í Efesus og bað þá að koma og hitta sig. 18 Þegar þeir komu sagði hann: „Þið vitið að frá þeirri stundu er ég steig fyrst fæti á Litlu-Asíu og fram á þennan dag, 19 hef ég unnið verk Drottins auðmjúkur og með tárum. Oft hef ég horfst í augu við dauðann vegna þeirra launráða, sem Gyðingarnir hafa bruggað mér. 20 Samt skoraðist ég aldrei undan að segja ykkur sannleikann, hvort sem það var opinberlega eða á heimilum ykkar. 21 Ég hef vitnað um það, bæði fyrir Gyðingum og heiðingjum, að við verðum að snúa baki við syndinni og gefast Guði á vald, í trúnni á Drottin Jesú Krist. 22 Nú er ég á leið til Jerúsalem, þangað knýr heilagur andi mig og við því fæ ég ekkert gert. Ekki veit ég hvað bíður mín þar, 23 en eitt veit ég þó: Heilagur andi segir við mig, hvert sem ég fer, að mín bíði fangelsi og þjáningar. 24 En líf mitt er ekki til neins annars en að vinna það verk, sem Drottinn Jesús fól mér – að flytja öðrum fagnaðarerindið um kærleika og náð Guðs. 25 Ég kom til ykkar og fræddi ykkur um guðsríki, en nú er mér ljóst, að þetta er í síðasta skipti sem þið sjáið mig. 26 Það er skoðun mín að ekki sé það mér að kenna þótt einhverjir glatist,“ 27 því að ég flutti ykkur allt Guðs orð og dró ekkert undan. 28 Gætið ykkar og safnaðarins vel. Heilagur andi hefur falið ykkur þá ábyrgð að vera leiðtogar fyrir hjörð Guðs og annast hana – kirkjuna, sem hann keypti með sínu dýrmæta blóði. 29 Ég veit að þegar ég er farinn frá ykkur, munu falskennendur koma fram á meðal ykkar. Þeir líkjast gráðugum og grimmum úlfum, sem ráðast á hjörðina. 30 Sumir úr ykkar hópi munu rangsnúa sannleikanum til að safna að sér fylgjendum. 31 Gætið vel að öllu! Minnist þessara þriggja ára er ég dvaldist meðal ykkar. Munið hvernig ég annaðist ykkur dag og nótt og gleymið ekki tárunum, sem runnu ykkar vegna. 32 Nú fel ég ykkur Guði og orði máttar hans, sem megnar að efla trú ykkar og gefa ykkur arf með öllum þeim, sem hann hefur helgað sér. 33 Hvorki girntist ég fé né fatnað nokkurs manns. 34 Þið vitið sjálfir að hendur mínar unnu fyrir lífsviðurværi mínu og jafnvel þörfum þeirra sem með mér voru. 35 Ég var ykkur fyrirmynd í því að hjálpa snauðum, minnugur orða Drottins Jesú: „Sælla er að gefa en þiggja.“ 36 Þegar Páll hafði lokið máli sínu, kraup hann niður og bað með þeim. 37 Þeir grétu og föðmuðu hann að sér að skilnaði, 38 og þótti sárt að heyra að hann mundi aldrei sjá þá framar. Síðan fylgdu þeir honum til skips.

In Other Versions

Acts 20 in the ANGEFD

Acts 20 in the ANTPNG2D

Acts 20 in the AS21

Acts 20 in the BAGH

Acts 20 in the BBPNG

Acts 20 in the BBT1E

Acts 20 in the BDS

Acts 20 in the BEV

Acts 20 in the BHAD

Acts 20 in the BIB

Acts 20 in the BLPT

Acts 20 in the BNT

Acts 20 in the BNTABOOT

Acts 20 in the BNTLV

Acts 20 in the BOATCB

Acts 20 in the BOATCB2

Acts 20 in the BOBCV

Acts 20 in the BOCNT

Acts 20 in the BOECS

Acts 20 in the BOGWICC

Acts 20 in the BOHCB

Acts 20 in the BOHCV

Acts 20 in the BOHLNT

Acts 20 in the BOHNTLTAL

Acts 20 in the BOICB

Acts 20 in the BOITCV

Acts 20 in the BOKCV

Acts 20 in the BOKCV2

Acts 20 in the BOKHWOG

Acts 20 in the BOKSSV

Acts 20 in the BOLCB

Acts 20 in the BOLCB2

Acts 20 in the BOMCV

Acts 20 in the BONAV

Acts 20 in the BONCB

Acts 20 in the BONLT

Acts 20 in the BONUT2

Acts 20 in the BOPLNT

Acts 20 in the BOSCB

Acts 20 in the BOSNC

Acts 20 in the BOTLNT

Acts 20 in the BOVCB

Acts 20 in the BOYCB

Acts 20 in the BPBB

Acts 20 in the BPH

Acts 20 in the BSB

Acts 20 in the CCB

Acts 20 in the CUV

Acts 20 in the CUVS

Acts 20 in the DBT

Acts 20 in the DGDNT

Acts 20 in the DHNT

Acts 20 in the DNT

Acts 20 in the ELBE

Acts 20 in the EMTV

Acts 20 in the ESV

Acts 20 in the FBV

Acts 20 in the FEB

Acts 20 in the GGMNT

Acts 20 in the GNT

Acts 20 in the HARY

Acts 20 in the HNT

Acts 20 in the IRVA

Acts 20 in the IRVB

Acts 20 in the IRVG

Acts 20 in the IRVH

Acts 20 in the IRVK

Acts 20 in the IRVM

Acts 20 in the IRVM2

Acts 20 in the IRVO

Acts 20 in the IRVP

Acts 20 in the IRVT

Acts 20 in the IRVT2

Acts 20 in the IRVU

Acts 20 in the ISVN

Acts 20 in the JSNT

Acts 20 in the KAPI

Acts 20 in the KBT1ETNIK

Acts 20 in the KBV

Acts 20 in the KJV

Acts 20 in the KNFD

Acts 20 in the LBA

Acts 20 in the LBLA

Acts 20 in the LNT

Acts 20 in the LSV

Acts 20 in the MAAL

Acts 20 in the MBV

Acts 20 in the MBV2

Acts 20 in the MHNT

Acts 20 in the MKNFD

Acts 20 in the MNG

Acts 20 in the MNT

Acts 20 in the MNT2

Acts 20 in the MRS1T

Acts 20 in the NAA

Acts 20 in the NASB

Acts 20 in the NBLA

Acts 20 in the NBS

Acts 20 in the NBVTP

Acts 20 in the NET2

Acts 20 in the NIV11

Acts 20 in the NNT

Acts 20 in the NNT2

Acts 20 in the NNT3

Acts 20 in the PDDPT

Acts 20 in the PFNT

Acts 20 in the RMNT

Acts 20 in the SBIAS

Acts 20 in the SBIBS

Acts 20 in the SBIBS2

Acts 20 in the SBICS

Acts 20 in the SBIDS

Acts 20 in the SBIGS

Acts 20 in the SBIHS

Acts 20 in the SBIIS

Acts 20 in the SBIIS2

Acts 20 in the SBIIS3

Acts 20 in the SBIKS

Acts 20 in the SBIKS2

Acts 20 in the SBIMS

Acts 20 in the SBIOS

Acts 20 in the SBIPS

Acts 20 in the SBISS

Acts 20 in the SBITS

Acts 20 in the SBITS2

Acts 20 in the SBITS3

Acts 20 in the SBITS4

Acts 20 in the SBIUS

Acts 20 in the SBIVS

Acts 20 in the SBT

Acts 20 in the SBT1E

Acts 20 in the SCHL

Acts 20 in the SNT

Acts 20 in the SUSU

Acts 20 in the SUSU2

Acts 20 in the SYNO

Acts 20 in the TBIAOTANT

Acts 20 in the TBT1E

Acts 20 in the TBT1E2

Acts 20 in the TFTIP

Acts 20 in the TFTU

Acts 20 in the TGNTATF3T

Acts 20 in the THAI

Acts 20 in the TNFD

Acts 20 in the TNT

Acts 20 in the TNTIK

Acts 20 in the TNTIL

Acts 20 in the TNTIN

Acts 20 in the TNTIP

Acts 20 in the TNTIZ

Acts 20 in the TOMA

Acts 20 in the TTENT

Acts 20 in the UBG

Acts 20 in the UGV

Acts 20 in the UGV2

Acts 20 in the UGV3

Acts 20 in the VBL

Acts 20 in the VDCC

Acts 20 in the YALU

Acts 20 in the YAPE

Acts 20 in the YBVTP

Acts 20 in the ZBP