Acts 25 (BOILNTAP)

1 Þrem dögum eftir að Festus kom til Sesareu, til að taka við embætti, fór hann til Jerúsalem. 2 Þar náðu æðstu prestarnir og leiðtogar Gyðinga tali af honum og sögðu frá afskiptum sínum af Páli. 3 Þeir báðu hann að koma strax með Pál til Jerúsalem. (Ætlun þeirra var að gera honum fyrirsát á leiðinni og drepa hann.) 4 Festus svaraði að þar sem Páll væri í Sesareu og hann sjálfur á leið þangað, 5 væri best að þeir, sem afskipti hefðu af málinu, yrðu honum samferða til réttarhaldanna. 6 Átta til tíu dögum síðar kom Festus til Sesareu og hófust réttarhöldin yfir Páli strax næsta dag. 7 Þegar Páll var leiddur inn í réttarsalinn, hópuðust Gyðingarnir frá Jerúsalem umhverfis hann og báru á hann margar alvarlegar sakir, sem þeir gátu þó ekki sannað. 8 Páll vísaði öllum þessum ásökunum á bug og sagði: „Ég er saklaus af öllu þessu. Hvorki hef ég brotið lög Gyðinga né vanhelgað musterið og því síður gert uppreisn gegn rómverskum yfirvöldum.“ 9 Festus, sem vildi þóknast Gyðingunum, spurði Pál: „Viltu fara til Jerúsalem og leyfa mér að taka upp málið þar?“ 10 10,11 „Nei,“ svaraði Páll. „Ég stend á rétti mínum og fer fram á að mál mitt verði rekið fyrir dómstóli keisarans. Þú veist vel að ég er saklaus. Hafi ég gert eitthvað, sem verðskuldar dauða, þá er ég reiðubúinn að deyja. En sé ég saklaus, þá hefur hvorki þú né nokkur annar rétt til að afhenda mig þessum mönnum, til þess að þeir geti drepið mig. Hér með áfrýja ég máli mínu til keisarans!“ 12 Festus ræddi málið við ráðgjafa sína og svaraði síðan: „Allt í lagi. Þú hefur skotið máli þínu til keisarans og til keisarans skaltu fara!“ 13 Skömmu síðar kom Agrippa konungur ásamt Berníke í nokkurra daga heimsókn til Festusar. 14 Meðan þau dvöldust þar, ræddi Festus mál Páls við konunginn og sagði: „Hér hjá okkur er fangi sem á óútkljáð mál frá því Felix var hér. 15 Þegar ég var í Jerúsalem sögðu æðstu prestarnir, og aðrir leiðtogar Gyðinga, mér álit sitt á málinu og heimtuðu að ég léti drepa hann. 16 Að sjálfsögðu benti ég þeim strax á að samkvæmt rómverskum lögum væru menn ekki dæmdir til dauða fyrr en búið væri að rannsaka mál þeirra og þeir fengið að flytja vörn. 17 Daginn eftir að þeir komu hingað tók ég málið fyrir og lét leiða Pál inn. 18 Sakirnar, sem bornar voru á hann, reyndust vera allt aðrar en þær sem ég hafði búist við. 19 Þær snerust allar um trúarbrögð þeirra og einhvern Jesú, sem var dáinn, en Páll hélt fram að væri lifandi. 20 Ég var í stökustu vandræðum með hvernig ég ætti að dæma í málinu, svo ég spurði Pál hvort hann vildi ekki að málið yrði tekið fyrir í Jerúsalem, 21 en þá áfrýjaði hann til keisarans. Ég skipaði því svo fyrir að hann yrði að vera í fangelsinu þangað til ég gæti komið honum til keisarans.“ 22 „Ég hefði gaman af að heyra í þessum manni,“ sagði Agrippa. „Það skaltu fá,“ svaraði Festus, „jafnvel strax á morgun.“ 23 Daginn eftir kom konungurinn ásamt Berníke til réttarins með mikilli viðhöfn. Í fylgd með honum voru foringjar úr hernum og æðstu embættismenn borgarinnar. Þá gaf Festus skipun um að Páll skyldi leiddur í salinn. 24 Þegar allir voru komnir, tók Festus til máls og sagði: „Agrippa konungur og aðrir viðstaddir, þetta er maðurinn sem Gyðingar hér og í Jerúsalem heimta að verði tekinn af lífi. 25 Ég lít svo á að hann hafi ekkert gert sem réttlæti dauðadóm. Nú hefur hann hins vegar skotið máli sínu til keisarans og á ég því engan annan kost en að senda hann þangað. 26 Vandinn er hins vegar sá að ég veit ekki hvað ég á að skrifa keisaranum, því að engin kæra liggur frammi gegn manninum! Þess vegna hef ég leitt hann fyrir ykkur, og þó einkanlega þig, Agrippa konungur. Ég vil fá botn í málið, svo ég viti hvað ég á að skrifa. 27 Það væri lítið vit í að senda fanga til keisarans án ákæru!“

In Other Versions

Acts 25 in the ANGEFD

Acts 25 in the ANTPNG2D

Acts 25 in the AS21

Acts 25 in the BAGH

Acts 25 in the BBPNG

Acts 25 in the BBT1E

Acts 25 in the BDS

Acts 25 in the BEV

Acts 25 in the BHAD

Acts 25 in the BIB

Acts 25 in the BLPT

Acts 25 in the BNT

Acts 25 in the BNTABOOT

Acts 25 in the BNTLV

Acts 25 in the BOATCB

Acts 25 in the BOATCB2

Acts 25 in the BOBCV

Acts 25 in the BOCNT

Acts 25 in the BOECS

Acts 25 in the BOGWICC

Acts 25 in the BOHCB

Acts 25 in the BOHCV

Acts 25 in the BOHLNT

Acts 25 in the BOHNTLTAL

Acts 25 in the BOICB

Acts 25 in the BOITCV

Acts 25 in the BOKCV

Acts 25 in the BOKCV2

Acts 25 in the BOKHWOG

Acts 25 in the BOKSSV

Acts 25 in the BOLCB

Acts 25 in the BOLCB2

Acts 25 in the BOMCV

Acts 25 in the BONAV

Acts 25 in the BONCB

Acts 25 in the BONLT

Acts 25 in the BONUT2

Acts 25 in the BOPLNT

Acts 25 in the BOSCB

Acts 25 in the BOSNC

Acts 25 in the BOTLNT

Acts 25 in the BOVCB

Acts 25 in the BOYCB

Acts 25 in the BPBB

Acts 25 in the BPH

Acts 25 in the BSB

Acts 25 in the CCB

Acts 25 in the CUV

Acts 25 in the CUVS

Acts 25 in the DBT

Acts 25 in the DGDNT

Acts 25 in the DHNT

Acts 25 in the DNT

Acts 25 in the ELBE

Acts 25 in the EMTV

Acts 25 in the ESV

Acts 25 in the FBV

Acts 25 in the FEB

Acts 25 in the GGMNT

Acts 25 in the GNT

Acts 25 in the HARY

Acts 25 in the HNT

Acts 25 in the IRVA

Acts 25 in the IRVB

Acts 25 in the IRVG

Acts 25 in the IRVH

Acts 25 in the IRVK

Acts 25 in the IRVM

Acts 25 in the IRVM2

Acts 25 in the IRVO

Acts 25 in the IRVP

Acts 25 in the IRVT

Acts 25 in the IRVT2

Acts 25 in the IRVU

Acts 25 in the ISVN

Acts 25 in the JSNT

Acts 25 in the KAPI

Acts 25 in the KBT1ETNIK

Acts 25 in the KBV

Acts 25 in the KJV

Acts 25 in the KNFD

Acts 25 in the LBA

Acts 25 in the LBLA

Acts 25 in the LNT

Acts 25 in the LSV

Acts 25 in the MAAL

Acts 25 in the MBV

Acts 25 in the MBV2

Acts 25 in the MHNT

Acts 25 in the MKNFD

Acts 25 in the MNG

Acts 25 in the MNT

Acts 25 in the MNT2

Acts 25 in the MRS1T

Acts 25 in the NAA

Acts 25 in the NASB

Acts 25 in the NBLA

Acts 25 in the NBS

Acts 25 in the NBVTP

Acts 25 in the NET2

Acts 25 in the NIV11

Acts 25 in the NNT

Acts 25 in the NNT2

Acts 25 in the NNT3

Acts 25 in the PDDPT

Acts 25 in the PFNT

Acts 25 in the RMNT

Acts 25 in the SBIAS

Acts 25 in the SBIBS

Acts 25 in the SBIBS2

Acts 25 in the SBICS

Acts 25 in the SBIDS

Acts 25 in the SBIGS

Acts 25 in the SBIHS

Acts 25 in the SBIIS

Acts 25 in the SBIIS2

Acts 25 in the SBIIS3

Acts 25 in the SBIKS

Acts 25 in the SBIKS2

Acts 25 in the SBIMS

Acts 25 in the SBIOS

Acts 25 in the SBIPS

Acts 25 in the SBISS

Acts 25 in the SBITS

Acts 25 in the SBITS2

Acts 25 in the SBITS3

Acts 25 in the SBITS4

Acts 25 in the SBIUS

Acts 25 in the SBIVS

Acts 25 in the SBT

Acts 25 in the SBT1E

Acts 25 in the SCHL

Acts 25 in the SNT

Acts 25 in the SUSU

Acts 25 in the SUSU2

Acts 25 in the SYNO

Acts 25 in the TBIAOTANT

Acts 25 in the TBT1E

Acts 25 in the TBT1E2

Acts 25 in the TFTIP

Acts 25 in the TFTU

Acts 25 in the TGNTATF3T

Acts 25 in the THAI

Acts 25 in the TNFD

Acts 25 in the TNT

Acts 25 in the TNTIK

Acts 25 in the TNTIL

Acts 25 in the TNTIN

Acts 25 in the TNTIP

Acts 25 in the TNTIZ

Acts 25 in the TOMA

Acts 25 in the TTENT

Acts 25 in the UBG

Acts 25 in the UGV

Acts 25 in the UGV2

Acts 25 in the UGV3

Acts 25 in the VBL

Acts 25 in the VDCC

Acts 25 in the YALU

Acts 25 in the YAPE

Acts 25 in the YBVTP

Acts 25 in the ZBP